Hið íslenzka þjóðfjelag
Tenglar
25.01.2008 20:56:28 / haddi900

Nýr meirihluti myndaður!

Ágætu kvistmenn og aðrir ógildir.

Sú nauðgun á lýðræðinu hefur nú átt sér stað að kvistmenn eru skyndilega komnir í minnihluta í þjóðfjelaginu. Kvistmenn, sem hingað til hafa skipað öll sæti í æðstaráði, voru illa sviknir af hægri armi sínum, sem myndað hefur nýjan meirihluta ásamt lykilmanni auðra og ógildra. Leiddist umræddum hópi þófið eftir 10 mánaða dvala þjóðfjelagsins. Virðist umræddur hópur ekki átta sig á því að stjórnmálamenn stjórna best þegar þeir trufla hina almenna borgara sem minnst, og gera því helst ekkert. Þess í stað hefur nýskipaður meirihluti ákveðið að kaupa aftur netþjón þjófjelagsins, sem nýverið var seldur á 8,000 krónur og bland í poka. Kaupverðið er talið vera um 1.700.000.000 evrur. Af þessu tilefni hefur eftirfarandi fréttatilkynning borist frá nýjum minnihluta þjóðfjelagsins, æðstaráðinu.

"Ágætu kvistmenn.

Löngum hefur það verið ljóst að lýðræði er einhvur sú mesta forheimskan sem nokkurn tímann hefur skokið þessa plánetu. Hafa kvistmenn aldrei verið fylgjandi þessu fyrirkomulagi, en þó neyðst til að fylgja því sökum meintra alþjóðlegra skuldbindinga. Þrátt fyrir ákafar en einfeldningslegar tilraunir ungliða vorra til að koma í veg fyrir framgang lýðræðisins síðustu daga á pöllum Þingvalla, hafði hin forheimska stjórnviska betur. Af því tilefni vill nýr minnihluti kvistmanna hvetja kvistmenn nær og fjær, sem og landsmenn alla, til byltingar. Löngu er kominn tími á upplýst einræði hér á landi, sem löngum hefur verið talið hið eina vitræna stjórnarfyrirkomulag. Vill nýr minnihluti benda á hvílíkur fjöldi kvistmanna er hæfur í hlutverk hins upplýsta einráðs. Þar ber helst að nefna:

xxxxxxx x. xxxxxxxxxxx (Kvistmaður nr. 1)

Bogi Ágústsson

Sveinbjörn Óskar Sigurðsson

Sveinn Hjörleifsson

Anton Carrasco

Jóhann Valdimarsson lassaróni

Loftur Baldvinsson

Dotor Ari

Sindri Kristjánsson

Stefán Árnason

Þór Jakobsson formaður sumarnefndar."

Undir þetta ritar f.h. nýs minnihluta:

xxxxxxx x. xxxxxxxxxxx (Kvistmaður nr. 1)

Hvetur málgagn þjóðfjelagsins kvistmenn til að fylgja ofangreindri áskorun, áður en hinn nýji meirihluta kaupir fleiri netþjóna. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 18:49:21 / haddi900

Þjóðfjelagið lagt niður

Sökum þeirrar bloggöldu sem riðið hefur yfir samfélagið undanfarin misseri þar sem allt frá leikskólabörnum til elligamalmenna hafa hafið blogg, verður ekki hjá því komist að leggja síðu þessa niður í núverandi mynd.

Það er því miður orðið langt fyrir neðan virðingu kvistmanna að halda úti slíkri almúgaiðju.

Kvistmönnum er þess í stað bent á að senda hvorum öðrum handskrifuð sendibréf við ýmis tækfæri. Það er án vafa mun kvistmannlegra að öllu leyti en þessi bloggfásinna.

Haddi B has spoken.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 11:56:06 / haddi900

Setjum á fót nefnd!

Einn ágætur kvistmaður fékk magnaða hugmynd um daginn. Forsætisráðherra okkar ágætu þjóðar lýsti því yfir að lausnin á einhverjum vanda Vestfirðinga væri að setja á fót nefnd. Þarna héldu kvistmenn að hann hefði loxins hitt naglann á höfuðið! Auðvitað væri lausnin á atvinnuvanda Vestfirðinga að setja á fót hinar ýmsu nefndir á Vestfjörðum, raunar að hafa allar nefndir landsins starfandi þar. Þar með þyrfti að fjölda íbúum á svæðinu margfalt.

En að sjálfsögðu áttaði okkar merki Normaður sig ekki á því, heldur setti nefndina á fót í Reykjavík.

Ef allir væru jafn snjallir og kvistmenn


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 23:59:14 / haddi900

Ómar Ragnarsson

Þjóðfjelagið vill hér með lýsa yfir stuðningi við nýtt framboð Ómars Ragnarssonar. Það vantar sárlega snarsnældugeðveika hugsjónamenn á Alþingi.

Kvistmenn nær og fjrær eru beðnir um að virða þetta.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 02:32:08 / haddi900

Samfélagið í ruglinu

Margir þjóðþekktir einstaklingar hafi komið að máli við mig og lýst yfir áhyggjum af því að samfélagið sé að fara til fjandans. Hafa menn bent á nýtilkomna bullshitt pointless stjórarskrárbreytingu og ógnvænlegt fylgi Vinstri grænna því til stuðnings.

 Hef ég sem formaður kvistmannsráðs, æðsta stjórnvalds þjóðfjelagsins og andsvars samfélaginsis, þetta að segja:

 Í 1. lagi er hið nýja ákvæði stjórnarskrárinnar álíka marklaust og ef þar stæði að Ingólfur væri nasisti. Það þarf ekki að skýra það fyrir lagamenntuðum kvistmönnum að hluti sem segja sig sjálfir þarf ekki að endurtaka í stjónrarskrá. Talandi um popúlisma Frjálslyndra...

Í 2. lagi  var Steingrímur J. Sigfússon á móti EES samningnum, hann var á móti því að leyfa bjórinn, hann var á móti kvótakverfinu, svo með því í smástund á meðan hann var í ríkisstjórn, og svo á móti því aftur.

 KOMMON!

Vinstri menn; Kjósið Samfylkinguna, haldiði að SJS sé staðfastur? Já, hann er  það, hann er almennt alfarið á móti hlutum sem koma þjóðinni til góða...

Haddi Bje has spoken


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 06:01:23 / haddi900

lítil vísa

Hér er eilítil staka:
Öl er innri maður
alldrukkin er hann.
Andskoti er hann graður
elskar næsta mann.
Öl er annar maður
félagslyndur fýr.
fórnfús ungur  maður.
ef  til vill einnig hýr.
Kynhvatajafnréttisnefnd Þjóðfjelagsins.

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 05:49:04 / haddi900

Þjóðfélagið tekur afstöðu

Í ljósi metnaðarleysis þjóðfélagsmeðlima(og alkóhólisma) hefur þjóðfélagið og loforðalistinn ákveðið að lýsa stuðningi við framboð Ómars Ragnarssonar, Andra Snæs og Jóns Baldvins Hannilbalssonar. Við hvetjum lesendur til að kjósa áðurnefnt framboð og drekka meiri bjór.

Pólitísk nefnd Kvistmanna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 23:03:06 / haddi900

Auðvaldið

Í dag mætti ég í vinnu hjá Kaupthingi banka eins og hann heitir víst þennan daginn, það var hressandi. Ég komst að því að ýmsar hetjur starfa þar, s.s. Kristján Arason, Ríkharður Daðason, Helgi Sigurðsson og síðast en ekki síst Jón Loftur Árnason. Það hlýtur að þýða að ég sé líka hetja, það er ekki eins og vinni eitthvað margir þar.

Kv.

Fjárstjórn þjóðfjelagsins

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 21:03:11 / haddi900

Rvk. City

Maður var ekki lengi að átta sig á því hvert maður stefndi er maður ók framhjá Borgarnesi. Eftir blíðaskaparveður alla leiðina tók við beljandi rigning og stormur um leið og undir Hafnarfjall var komið. Engum lifandi manni dettur að sjálfsögðu í hug að veðrið hafi skánað er í sódómu var komið.
En þar sem ég er inni að horfa á The Office og drekka bjór þá sleppur þetta til í bili...    

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 03:08:55 / haddi900

Afsökunarbeiðni

Ágætu lesendur.

Ég bið fjölmarga aðdáendur mínar afsökunar á hinni sjúklegu bjartsýni sem heltók mig í síðustu færslu. Ég gruna eigendur sjallans um að hafa smyglað einhvurslags alsælu í g&t-ið mitt.

Hinsvegar hef ég ákveðið að á þessu ári ætla ég að kaupa mér þræl. Ég held að það sé ótrúlega skemmtilegt að eiga einn slíkan.

Lifið heil.

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 07:47:53 / haddi900

2007

Ég held að árið 2007 verði ákaflega gott ár, það hljómar einfaldlega einhvurn veginn þannig, 2007...

Annars fannst mér hið reglubundna áramótaskaup vera hið albesta sinnar tegundar í ár. Ég velti því fyrir mér hvers vegna, þar til mér var bent á það að spaugsstofumenn tóku ákaflega lítinn þátt í ár, þá loksins fattaði ég af hverju mér fannst það svona gott...

Annars vil ég bara ítreka það, að ég hef sennilega sjaldan á ævinni verið jafn bjartsýnn fyrir neitt ár eins og 2007, það er bara eitthvað í tölunum sem segir mér að eitthvað stórgott mun eiga sér stað á árinu. Ég bíð því spenntur og mun gera mitt besta til að vera undir hið jákvæða búinn.

Haddi B has spoken

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 05:57:31 / haddi900

Annáll 2006

Hér er ætlunin að setja inn annál ársins 2006 í punktaformi. Lengd færslunnar mun fara eftir því hversu snemma ég dey áfengisdauða, í 79 sinn á árinu.

- Saddam Hussein lést á árinu eins og áður hefur komið fram. 83 ára gamall afi minn hitti naglann á höfuðið áðan er hann sagði "hefðu þeir ekki betur hengt Bush í leiðinni?" Afar eru gáfaðri en margir halda... Saddam var hinsvegar ekki eini merkismaðurinn sem lést á árinu. Hinn epíski einræðisherra Turkmenbashi lést einnig um daginn, en ég vona að það komi ekki í veg fyrir fyrirætlanir hans um íshöll í eyðimörkinni. Hana væri ég til í að heimsækja. James Brown lést einnig, en hann hefði eflaust orðið prýðis einræðisherra.

- Margir fjelagar mínir sunnan heiða fögnuðu ákaft er sjálfstæðisflokkurinn fagnaði sigri í borgarstjórnarkosningunum sl. vor. Töldu menn þá liðna tíð skattpíningar að hætti vinstri manna. Gaman væri að sjá framan í þá ágætu menn er sá hinn sami stórfenglegi flokkur tók sig til nú um jólin og hækkaði sundferðina um 25%, úr 280 kr. í 350. Þetta kalla ég skattalækkanir!

- Hið epíska fjelag Hamrarnir tóku þátt í Íslandsmótinu í knattspyrnu sl. sumar. Hápunkturinn er sú staðreynd að það gerir það að verkum að nafn mitt mun birtast í "Íslensk knattspyrna 2006", sem maðurinn á bakvið 2 stórfenglegar innkomur sem varamaður, en slíkt hefur lengi verið draumurinn.

- Árni Johnsen, þjóðhetja Vestmannaeyinga, sem af einhverjum óútskýranlegum ástæðum eiga fulltrúa á þjóðþingi Íslendinga, vann merkan sigur í prófkjöri. Var það nokkuð hvimleitt fyrir undirritaðan, þar sem ég lýsti því yfir fyrir nokkrum árum að ef sá maður yrði kjörinn aftur á Alþingi myndi ek flytjast til Færeyja. Stefnir því allt í það en vafalítið er það fyrir bestu fyrir alla hlutaðeigandi. Ekki vil ég eyða árunum 2007-2023 í fangelsi...

-Íraksstríðið hélt áfram á árinu sem aldrei fyrr, og minnist ég þá orða manns sem ég átti í miklum rökræðum við um réttmæti stríðsins áður en USA réðst inn 2003. Hann taldi um einfalt reikningsdæmi vera að ræða, annars vegar hversu margir myndu látast í stríðinu og hins vegar hversu margir myndu látast undir stjórn Saddams. Ég held því miður að ég hafi haft óendanlega rjett fyrir mér. Það ætti raunar ekki að koma á óvart, enda minnist ég þess harla að ég hafi haft rangt fyrir mér.

- Að öðru leyti held ég að árið 2006 falli í gleymsku sögunnar sem eitt hið alómerkilegasta ár alheimssögunnar, en það má s.s. vel vera að stöðug ölvun mín á árinu hafi raskað minninu.

Að lokum set ég síðan inn einn broskall, til að létta lund lesenda: :)

Lifið heil á nýju ári, sem hlýtur að verða merkilegra en þessi tittlingaskítur.


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 19:36:11 / haddi900

Merkilegt

Í dag er Saddam Hussein dauður. Það þýðir að hann sé ekki til lengur. Hann var drepinn, eins og ekkert væri sjálfsagðara. Það finnst mér merkilegt. Ég hefði viljað sjá Alan Shore verja hann með Denny Crane sér við hlið. Þá væri hann ábyggilega lifandi í dag. Það væri mun skemmtilegra.

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 03:58:31 / haddi900

Nú get ég ekki á mér setið

Eru allir íbúar þessa heims þroskaheftir?
Af hverju meikar ekkert sens sem neinn íbúi þessa heims gjörir?
Þetta eru bara hálfvitar upp til hópa, með örfáum undantekningum, og ég skil þær harla.
Til hvers í andskotanum erum við að þessu?

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 12:06:12 / haddi900

Innviðir þjóðfjelagsins að myndast

Það gleður mig að tilkynna það að hinir fjölmörgu vitfirringar sem fjálglega hafa rætt síðustu misseri um niðurníðslu þjóðfjelagsins hafa blessunarlega kolrangt fyrir sér (eins og vitfirringum er gjarnt). Ástæður fárra tilkynninga umsjónarmanns nú í sumar er einfaldlega sú að unnið hefur verið hörðum höndum að því að koma á fót framkvæmda- og dómsvaldi innan þjóðfjelagsins. Eins og allir vita er löggjafarvald í höndum æðstaráðs kvistmanna en í anda siðmenntaðra samfélaga þótti rjett að þrískipta ríkisvaldinu. Hefur því undirritaður starfað sveittur við það í sumar að gefa út ákærur fyrir hönd framkvæmdavaldsins og ekki síður sveittur við dómsuppkvaðningar fyrr í sumar f.h. dómsvaldsins. Eru þær milljónir manna sem hlotið hafa dóma eða ákærur kvattir til að borga skuldir sínar til þjóðfjelagsins inná rkn. 01-01-000001 fyrir kl. 14 í dag, ella komi lífstíðarfangelsisdómur sem vararefsing.

Lifið heil.

Haddi B has spoken


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5